Tandoori er nýr veitingastaður með Indversku ívafi í Skeifunni 11. Í boði eru fjölbreyttir kjúklinga-, lambakjöts-, fisk- og grænmetisréttir, salöt, Naanwich, jógúrtdrykkir og súpur.
Lögð er áhersla á náttúrulegar eldunaraðferðir, framandi keim, einfaldleika, gæði og fagmennsku, ódýran og góðan mat. Karrý, kókos, chili, engifer, garam masala, jógúrt, grænmeti og ávextir er áberandi á matseðli Tandoori en majonessósur, mettuð fita, MSG og sykur eru víðsfjarri. Saltnotkun er í lágmarki, enda hollustan í fyrirrúmi. Verð aðalrétta á Tandoori er á bilinu 649 – 1.999 kr sem verður að teljast frábært fyrir heimsþekkta Indverska rétti.
Hjarta staðarins er stór, öflugur og sérinnfluttur Tandoori-ofn, sem notaður er til að baka í naan- og rotibrauð, steikja Tandoori kjúkling og ýmsa aðra rétti við mikinn hita, allt upp í 400˚C. Tandoori er leirofn, í laginu eins og stór leirkrukka, upprunninn á Norður-Indlandi og í nálægum löndum.
Á Tandoori er opið alla daga til kl. 22.00 opnað kl. 11.00 nema Laugardaga kl. 11:30 og sunnudaga kl. 13. Í hádeginu er miðað við að gestir geti ýmist gripið með sér mat út af staðnum eða sest niður við borð – en á kvöldin er meira lagt upp úr að fólk geti tekið sér tíma og notið samveru yfir góðum veitingum. Einnig er boðið upp á veisluþjónustu fyrir hópa.
Yfirmatreiðslumeistari staðarins er Samuel Kamran Gill, sem hefur margra ára reynslu af Indverskri og Pakistanskri matargerð.
Á Tandoori er allur matur eldaður frá grunni – ekkert foreldað. Allt kjöt er marinerað í 24 klst. áður en það er tilbúið til eldunar. Tandoori er ekki skyndibitastaður – en hins vegar er hægt að fá úrval af tilbúnum réttum úr hitaborði og það tekur enga stund.